blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

5.25.2004

Megavika

Þetta er búið ad vera rosaleg vika! Fyrirlesturinn gekk bara vel, þad var ákv. ad setja göginn mín inna uppl.grunninn, þannig eg er sátt. nú er bara ad koma þessu öllu saman yfir á annað format og skella þessum hluta sem er tilbúin inn!! vá.. hvad eg verð ánægð þegar þessum hluta er lokið og eg get hafist handa við næsta svæði.. þetta er búið ad taka sinn tíma..og endurvinnslu.. eftir að gögninn hurfu til letlands i fyrra!!! næst verður tekið fyrir vestur hlutinn af eyjunni.. þannig eg hlakka bara til ad komast í gönguskóna og út!!! eg komst slysalaust fra þessu ollu saman... en þad er kanski ekki hægt ad segja um restinna af deginum. ég fór nefnilega a kynningu á nýrri version á uppl.forriti. þad var svona mikið ´dúndur stuð á mer ad eftir nokkrar lettar veitingar og smá læti þa skellti eg mer i bæinn og rassskellti nokkra af helstu stöðum bæjarinns! Mjög upplífgandi!;)
Svo var ad klára undirbúninginn fyrir brúðkaupið! við vorum med myndasjó og smá læti. Brúðkaupið á laugardaginn var bara fallegt og æðislegt. Gat ekki haldið aftur af mer þegar hun gekk inn gólfið... guð minn góður hvað hun var flott!!!! páll óskar söng i kirkjunni (.. í rauðu! samkv. ósk brúðarinnar ;) ótrúlega smart! ) hann gerði þetta strórkostlega.. enda ekki ad því ad spyrja!!! Veislan og dagurinn var sem sagt frábær. Um kvöldið fór eg sem þriðja hjólið á thorvaldsen, fengum okkur borð sem við samsömuðum okkur við það sem eftir var af kvöldinnu... mest ljómandi!
ég er ad plotta ferð til gömlu minnar... buin ad vera ad safna saman ferðapunktum.. og þetta lítur ágætlega ut! Gamla settið er i uppherslu i hveragerði þannig eg ætla til þeirra um helginna og sannfæra þau um ágæti og nauðsyn þess ad eg og dýrið skellum okkur í nokkra daga! verð ad komast!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home